Innskráning
 
 
Matseðill
 RéttirVerð
Grænmetissamloka með engifertómötum, papriku og krydduðum hummus350
Blönduð grænmetisbaka Dijon, borin fram með fersku salati og dressingu780
Ristuð samloka með ferskum mozzarella, rucola og heimalöguðu pestó550
Súpa dagsins (tómat, sveppa, aspas o.fl.), borin fram með ciabatta750
Sesarsalat (romainhjörtu, brauðteningar og hvítlauksolía og dressing)750
Kaffihúsið

Á Laugavegi 36 er starfrækt verðlaunað, reyklaust og nýtískulegt kaffihús byggt á gömlum merg í húsi sem hýst hefur starfsemi fyrirtækisins frá upphafi. Það var opnað árið 2000 í nýjum búningi.

Hér er gott að koma við í amstri dagsins og bragða á einhverju af þeim fjölbreytilegu réttum sem í boði eru. Boðið er upp á brauð, tertur, súkkulaði, súpur, bökur og ýmislegt fleira.

Tekið er við litlum hópum (8-12 manns) í léttan rétt með sætum á sanngjörnu verði í félagsskap meistarans. Matseðillin er alltaf eitthvað frumlegt og óvænt. Boðið hefur verið upp á ferskan hörpudisk borinn fram með steiktu engifermangó og súkkulaðisósu. Einnig Ítalskt "Bruscetta" hlaðborð.

Hér er opið alla daga frá kl. 7:30 til 18:15 (17:00 um helgar). Við tökum vel á móti ykkur.

Drykkir
 DrykkurVerð
Okkar rómaða heita súkkulaði350
Sérblandað nýmalað kaffi250
Espresso210
Cappuccino290
"Swiss" mokka350
Café Latté290
Gos, pilsner o.fl. 
Myndir
Sandholt \ Laugarvegi 333 \ Sími: 555-5555sandholt@sandholt.is
 Mode: